Laust starf - Aðstoðarmanneskja í skólamötuneyti
04.02.2026
Störf í boði
Aðstoðarmanneskja í skólamötuneyti
Norðurþing - Fullt starf
Umsóknarfrestur: 15.02.2026
Skólamötuneyti Húsavíkur auglýsir starf aðstoðarmatráðs í fullt starf. Helstu verkefni aðstoðarmatráðs við Skólamötuneyti Húsavíkur er umsjón með framreiðslu og afgreiðslu morgunverðar í Borgarhólsskóla, aðstoð við gerð hádegisverðar og síðdegishressingar, frágangur eftir morgunverð og matreiðslu hráefnis, móttaka hráefnis og frágángur ásamt þrifum á sameiginlegum rýmum í eldhúsi. Aðstoðarmatráður er undirmaður deildarstjóra og yfirmatráðs skólamötuneytis.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar
- Reynsla og þekking á matreiðslu og bakstri æskileg
- Stundvísi og almenn verkkunnátta
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og geta til að vinna eftir leiðbeiningum og fyrirmælum
- Krafist er góðrar íslensku/ensku kunnáttu í töluðu og rituðu máli
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. apríl næstkomandi.