Fara í efni

Atvinna með stuðningi (AMS)

AMS

Atvinna með stuðningi er árangursrík leið fyrir þá sem þurfa aðstoð við að fá vinnu á almennum vinnumarkaði.

Vinnubrögðin fela í sér víðtækan stuðning við þá sem hafa skerta vinnugetu vegna andlegrar og / eða líkamlegrar fötlunar, aðstoð við að finna rétta starfið og veita stuðning á nýjum vinnustað.

Markhópur: Einstaklingar með skerta starfsgetu sem þurfa aðstoð við atvinnuleit, þjálfun í starf og stuðning við að halda vinnu á almennum vinnumarkaði.

Þjónustan:

  • Þátttaka og þjálfun á almennum vinnumarkaði.
  • Aðstoð við öflun starfa með sömu réttindum og skyldum og almennt gerist.
  • Færni umsækjanda er höfð að leiðarljósi en ekki fötlunin.
  • Úrræði miðað að þörfum einstaklings.
  • Áhersla á góða samvinnu við atvinnurekendur.
  • Aðstoð við að mynda tengsl á vinnustað.
  • Stuðningur svo lengi sem þörf er á.
  • Byggt upp stuðningsnet á vinnustað.
  • Markvisst er dregið úr stuðningi, en vinnuveitandi og starfsmaður hafa þó áfram aðgang að ráðgjafa eftir þörfum.
  • AMS er umsjónaraðili vinnusamnings öryrkja.

Frekari upplýsingar er að finna á vef Vinnumálastofnuna þar sem hægt er að sækja um. 

Sunna Mjöll Bjarnadóttir er í forstöðu fyrir AMS og veitir ráðgjöf við umsóknarferlið