Fara í efni

Félagsleg heimaþjónusta

Umsjón: Sunna Mjöll Bjarnadóttir
Netfang:
sunna@nordurthing.is

Félagsleg heimaþjónusta
Með félagslegri heimaþjónustu er átt við þá þjónustu sem fjallað er um í VII. kafla  laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að efla notandann til sjálfsbjargar og  sjálfræðis og gera honum kleift að búa sem lengst á eigin heimili, við sem eðlilegastar aðstæður.

Sækja þarf um félagslega heimaþjónustu til Sunnu Mjallar Bjarnadóttur, ráðgjafa félagslegrar heimaþjónustu eða inn á íbúagátt Norðurþings HÉR. Umsókn er lögð fyrir á samráðsfundi félagsþjónustu Norðurþings. Þjónustuþegar greiða samkvæmt gjaldskrá, sem samþykkt er af sveitarstjórn. Gjaldskráin er tekjutengd.

Frekari upplýsingar veitir Sunna Mjöll Bjarnadóttir, ráðgjafi félagslegrar heimaþjónustu í síma 464 6100 eða á netfanginu sunna@nordurthing.is

Heimsending á mat
Einstaklingar sem ekki geta annast matseld sjálfir eiga kost á að fá heimsendan mat. Boðið er upp á mat í hádeginu alla daga vikunnar (líka um helgar og hátíðisdaga) og er honum ekið til notenda. Máltíðin kostar nú 1.800-.kr.

Allar óskir um breytingar og tilkynningar um fjarveru þurfa að berast til Sunnu Mjallar á  - sunna@nordurthing.is eða í síma Norðurþings 464-6100 (fyrir kl. 10:00 ef breytingin á að verða samdægurs).

Sótt er um heimsendan mat á til Félagsþjónustu Norðurþings - umsókn um heimsendan mat