Útilistaverk í Norðuþingi
Þau eru fjölmörg útilistaverkin sem prýða ásýnd sveitarfélagsins.
Helga Dagný Einarsdóttir hefur að undanförnu unnið að því að
skrásetja og útbúa bækling með útlistaverkum Norðurþings.
Fyrsti hluti þessa verkefnis var að skrásetja útilistaverkin sem staðsett
eru á Húsvík og mun svo í framhaldi hefja vinnu við að skrásetja
útilistaverkin á Kópaskeri og Raufarhöfn.
Þessi bæklingur er upprunalega unninn sem 10 eininga sjálfstætt verkefni
á menntavísindasviði Háskóla Íslands vorið 2025, þar sem fjallað var um 7
listaverk í almannarými Húsavíkur. Verkefnið hefur undið upp á sig í samvinnu
við Norðurþing og hafa nú bæst við þau verk sem vantaði uppá. Með þessum
upplýsinga bæklingi býðst heimamönnum og öðrum gestum Húsavíkur tækifæri
til að fræðast um brot af þeim gersemum sem sveitarfélagið hefur upp á að
bjóða í almannarými, sem oft er gengið fram hjá án þess að því sé gefinn nokkur gaumur.
Hér má finna bæklinginn um útilistaverkin á Húsavík á íslensku og ensku.
Útilistaverk á Húsavík