Fara í efni

Persónuvernd

Norðurþing er umhugað um persónuvernd í starfsemi sinni og leggur áherslu á lögmæta, sanngjarn og gagnsæja meðferð persónuupplýsinga. Sveitarfélagið vinnur eftir lögum um persónuvernd og vinnslu persónuuplýsinga nr. 90/2019 Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018

Persónuverndarstefna
Norðurþing hefur sett sér persónuverndarstefnu og var hún samþykkt í sveitarstjórn 18. september 2018. Í stefnunni má finna upplýsingar um stefnu sveitarfélagsins varðandi persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga svo sem söfnun þeirra, varðveislu og öryggi.

Persónuverndarfulltrúi
Persónuverndarfulltrúi Norðurþings er Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður hjá lögmannstofunni Pacta www.pacta.is. Persónuverndarfulltrúinn tekur við fyrirspurnum og ábendingum sem einstaklingar kunna að hafa varðandi persónuvernd hjá Norðurþingi á netfangið personuvernd@nordurthing.is

Fyrirspurnir um eigin persónuupplýsingar og meðferð eigin persónuupplýsinga má senda á nordurthing@nordurthing.is