Fara í efni

Örn Sigurðsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á landi sínu úr Þverá í Reykjahverfi

Málsnúmer 201403051

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 115. fundur - 19.03.2014

Örn Sigurðsson og Sólveig Guðmundsdóttir óska eftir byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á landspildu að Þverá í Reykjahverfi (lnr. 212.570). Flatarmál húss er 118,4 m² og rúmmál 414,5 m³. Húsið verði steinsteypt í viðurkennd frauðplastmót og klætt með bárustáli. Teikningar eru unnar af Erni Sigurðssyni byggingartæknifræðingi. Skipulags- og byggingarnefnd heimilar byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi fyrir húsinu þegar fullnægjandi gögn hafa borist.