Fara í efni

Ósk um breytta skráningu frístundahúss að Stekkjahvammi 1 í íbúðarhús

Málsnúmer 201609134

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 7. fundur - 12.09.2016

Óskað er eftir samþykki fyrir skráningu Stekkjarhvamms 1 sem íbúðarhúss í stað frístundahúss svo unnt sé að skrá þar lögheimili. Nú þegar er skráð ábúð á tveimur lóðanna innan sama frístundahúsasvæðis fyrir utan að á jaðri svæðisins er einbýlishús í byggingu. Fyrir liggur skriflegt samþykki nágranna fyrir breyttri skráningu.
Skipulags- og umhverfisnefnd fellst á breytta skráningu hússins í því ljósi að þegar er skráð ábúð í þremur húsum á svæðinu.