Fara í efni

Elsa Dögg Stefánsdóttir og Henný Birgitta Kristjánsdóttir óska eftir að gangbrautir verði gerðar sýnilegri og útsýni við gatnamót verið bætt.

Málsnúmer 201911032

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 50. fundur - 12.11.2019

Elsa Dögg og Henný benda á að gera þurfi gangbrautir meira áberandi og bæta útsýnið á gatnamótum t.d. með speglum. Bæta þurfi útsýnið við gatnamótin við N1, neðri - Uppsalaveg, Hjarðarhól - Garðarsbraut og á Ásgarðsveginum.
Ráðið þakkar erindið og vísar innsendum athugasemdum til framkvæmda- og þjónustufulltrúa.