Fara í efni

Umsókn um styrk frá sveitarfélögum á Norðurlandi eystra vegna opnunar kvennaathvarfs

Málsnúmer 202006130

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 332. fundur - 02.07.2020

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá SSNE fyrir hönd Kvennaathvarfsins varðandi styrk sveitarfélaga á Norðurlandi eystra til að geta opnað kvennaathvarf á norðurlandi. Erindið var sent til SSNE í kjölfar fundar sem samtökin héldu með sveitarstjórum og ríkislögreglustjóra 5. júní sl. Áætlað framlag sveitarfélaga á Norðurlandi eystra er 2,5 milljónir.
Byggðarráð samþykkir að styrkja verkefnið í samræmi við tillöguna.