Verum saman í liði!
Málsnúmer 202609127
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 528. fundur - 22.09.2026
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Framsýn stéttarfélagi þar sem skorað er á sveitarfélagið Norðurþing sem og önnur sveitarfélög á félagssvæðinu að halda almennum gjaldskrárhækkunum í lágmarki á komandi mánuðum og árum og tryggja þannig velferð íbúa sveitarfélagsins.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið og mun í vinnu sinni við fjárhagsáætlunargerð taka til greina þær ábendingar sem fram koma í erindinu.