Fara í efni

Ráðið hefur verið í starf verkefnastjóra á framkvæmdasviði Norðurþings

Ráðið hefur verið í starf verkefnastjóra á framkvæmdasviði Norðurþings sem auglýst var á heimsíðu Norðurþings þann 10. apríl og var Ketill Gauti Árnason ráðinn í starfið.

Ketill lauk B.Sc. prófi í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2017 og hefur undanfarið ár verið tímabundið ráðinn sem verkefnastjóri á framkvæmdasviði Norðurþings. Með námi sinnti Ketill ýmsum þjónustustörfum s.s. starfsmaður í verslun Húsasmiðjunnar, starfsmaður í gestamóttöku á Hótel KEA og sumarstarfi í ferðaþjónustu í Húsafelli. Ketill uppfyllti öll skilyrði í auglýsingu um starf verkefnastjóra á framkvæmdasviði og fékk auk þess hin bestu meðmæli allra umsagnaraðila.

Við bjóðum Ketil velkominn til áframhaldandi starfa í stjórnsýsluhúsinu.