Fara í efni

Menntastefna Norðurþings 2026–2031

Norðurþing kynnir nýja menntastefnu sem gildir til ársins 2031.


Stefnan tekur við af skólastefnu sveitarfélagsins sem gilti 2020–2025 og hófst vinnan við endurskoðun í byrjun árs 2025. Stýrihópur á vegum fjölskylduráðs, með ráðgjöf frá Ásgarði skólaráðgjöf, leiddi verkefnið sem lauk með samþykkt stefnunnar haustið 2025. Stýrihópur átti víðtækt og gott samráð við skólasamfélagið og nýtti margvísleg gögn við mat á framgangi fyrri stefnu og tækifærum til framtíðar til grundvallar nýrri menntastefnu.

Endurskoðunin leiddi í ljós töluverðan árangur og margir þættir stefnunnar eru sýnilegir í starfi skólanna, það má sjá í innra matsskýrslum hvers skóla á heimasíðum þeirra. Hver skóli vann að innleiðingu með því að nota innra mat (sjálfsmat) til þess að koma auga á styrkleikana, það sem er gott og er til staðar, og einnig að koma auga á hvað er ekki til staðar og þyrfti að innleiða eða bæta. Þrátt fyrir að heimsfaraldur Covid hafi tekið nokkurn toll af skólunum á gildistímanum þá gekk margt vel. Það kom fram að traust ríkir á skólastarf almennt og starfsfólk hefur metnað til þess að leita leiða svo leikur, nám og kennsla verði enn betri og sem mest sniðin að fjölbreyttum þörfum skapandi nemenda.

Menntastefnan nær yfir alla starfsemi leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla Norðurþings og er jafnframt leiðarvísir fyrir öll sem starfa við menntun og uppeldi í sveitarfélaginu. Hún byggir á gildunum metnaði, ábyrgð, trausti og virðingu og hefur það að markmiði að tryggja öllum börnum gæðamenntun í öruggu og heilsueflandi umhverfi. Lögð er sérstök áhersla á læsi en í stefnunni eru settar fram áherslur og gæðaviðmið um læsi í Norðurþingi, auk þess er lögð áhersla á sjálfbærnimenntun, velferð, persónumiðað nám, stuðning við starfsfólk og starfsþróun, auk öflugs samstarfs við foreldra og samfélagið allt. Rík áhersla er lögð á heildstæða skólaþjónustu, stuðning við starfsfólk og samþætta, þrepaskipta þjónustu í þágu farsældar barna.

Menntastefnan 2026–2031 byggir á þeirri framtíðarsýn að öll börn í Norðurþingi eigi jafnan rétt á gæðamenntun, óháð búsetu, þar sem jöfn áhersla er lögð á siðvit, bókvit, verkvit og skapandi greinar. Markmiðið er að börn og foreldrar upplifi að námið hafi skýran tilgang og að skólastarfið undirbúi börn fyrir frekara nám og virka þátttöku í lýðræðissamfélagi. Jafnframt er lögð rík áhersla á að sveitarfélagið laði til sín og haldi í gott starfsfólk og byggi upp eftirsóknarvert starfsumhverfi sem styður við starfsþróun, nýsköpun og stuðning við útfærslu skólastarfs.

Í stefnunni eru sett fram níu meginmarkmið sem leiða skólastarf næstu ár. Þar er meðal annars kveðið á um að ávallt sé unnið samkvæmt gildandi lögum og aðalnámskrám, að tryggður sé stuðningur og starfsþróun fyrir skólana, að snemmtækur og samþættur stuðningur sé í forgrunni, að samstarf við foreldra og samfélag sé markvisst, að rödd barna heyrist og tekið sé mark á þeim, að unnið sé í anda heimsmarkmiðanna og Barnasáttmálans, að læsi sé hornsteinn náms og að innra mat og nýting gagna styðji við umbætur.

Innleiðing stefnunnar fer fram í gegnum innra mat skólanna eins og áður. Meginmarkmið stefnunnar eru tekin fyrir og metin samkvæmt langtímaáætlun hvers skóla (skólar uppfæra langtímaáætlun og setja meginmarkmiðin inn, gera svo grein fyrir í ársáætlun hvaða aðferðir verða notaðar við matið og hverjir taka þátt). Hvert markmið er rýnt sérstaklega ásamt þeim kafla sem það snertir, viðeigandi gagna aflað og metið hvort viðmið stefnunnar og/eða skólans séu uppfyllt. Ef ekki er sýnt fram á ásættanlegan árangur fer viðkomandi þáttur í markvisst umbótaferli með þar til gerðum aðgerðum þar til markmiðum er náð. Með þessum hætti er tryggð markviss innleiðing, stöðug framþróun, skýr ábyrgð og eftirfylgni til ársins 2031.

Með menntastefnu 2026–2031 markar Norðurþing skýra og metnaðarfulla stefnu til framtíðar.

Markmiðið er að tryggja öllum börnum gæðamenntun og stöðugar umbætur í öflugu og framsæknu skólasamfélagi. Rauði þráðurinn í gerð skólastefnunnar árið 2020 var að þora að setja markið hátt og hafa metnað til þess að vera í allra fremstu röð. Þessi þráður á enn við og nú gefst tækifæri til þess að gera enn betur.

Menntastefnu Norðurþings má finna hér.