Fara í efni

Faglausn, VÍS og Sjóvá gefa til Slökkviliðs Norðurþings

Samfélagssjóður VÍS veitti Slökkviliði Norðurþings ríkulegan styrk til kaupa á 6 stórum Master hitablásurum sem notaðir verða á nýju æfingasvæði liðsins í Haukamýri. Blásararnir eru með hitastilli búnaði og því hægt að hafa fulla stjórn á þeim aðstæðum sem notast á við hverju sinni. Blásararnir gera það mögulegt að stunda æfingar við heilsusamlegar aðstæður þar sem ekki þarf lengur að notast við opinn eld til að framkalla hita á reykköfunaræfingunum en efni sem leysast úr læðingi við bruna eru afar skaðleg heilsunni og geta valdið krabbameini sem er því miður orðinn viðurkenndur fylgifiskur starfa slökkviliðsmanna.

Slökkviliðið er afar þakklátt VÍS fyrir þennan góða styrk.

 

Faglausn ehf á Húsavík færði slökkviliðinu að gjöf fullkomna reykvél til nota á nýju æfingasvæði liðsins. Reykvélin getur framleitt um 20.000 m3 af reyk á klst. sem ekki inniheldur nein hættuleg efni fyrir heilsu manna. Vélin gerir það að verkum að hægt er að þjálfa reykkafara liðsins við öruggar og heilsusamlegar aðstæður.

Slökkviliðið er afar þakklátt Faglausn fyrir þessa góðu gjöf.

 

Sjóvá Húsavík veitti Slökkviliði Norðurþings styrk til kaupa á tveimur vatnssugum. Vatnssugurnar eru af gerðinni Flow mix 429 og eru útbúnar með dælu sem getur dælt frá þeim vatni jafnhliða notkun. Vatnsugurnar eru ánægjuleg viðbót við þann búnað sem liðið átti til að bregðast við vatnslekum. Talvert mörg útköll voru vegna vatnsleka í íbúðarhúsum og fyrirtækjum s.l. ár.

Slökkviliðið er afar þakklátt Sjóvá fyrir þennan góða styrk.