Fara í efni

Framkvæmdir við endurnýjun veitulagna og yfirborðsfrágang Reykjaheiðarvegar

Framkvæmdir eru hafnar við endurnýjun veitulagna og yfirborðsfrágang Reykjaheiðarvegar.

Verksvæði sem undirlagt verður vegna framkvæmdarinnar teygir sig frá norður-enda Brávalla í vestri að Tungu við austur-enda Reykjaheiðarvegar.

Vegna framkvæmdanna eru íbúar og aðrir sem nauðsynlega eiga leið um svæðið, beðnir um að sýna varúð. Einnig eru íbúar á og við verksvæðið beðnir um að sýna umburðarlyndi og þolinmæði, en ekki er ólíklegt að ónæði geti orðið vegna framkvæmdanna.

 Höfðavélar ehf eru aðalverktaki verksins, en þeir hafa í gegnum tíðina sannað ágæti sitt og sinnt fjölmörgum verkefnum á vegum Norðurþings, bæði stórum og smáum og með góðum árangri. Undirverktakar Höfðavéla ehf í þessu verkefni eru Vermir ehf sem sjá um veituhluta framkvæmdarinnar samhliða Orkuveitu Húsavíkur ohf, Garðvík ehf, EG Jónasson og Faglausn ehf.