Fara í efni

Opnun gagnatorgs Norðurþings

Á vef Norðurþings hefur verið opnað Gagnatorg þar sem nálgast má upplýsingar um íbúatölur, fjárhagsleg málefni sveitarfélagsins og rekstrartölur málaflokka síðustu þrjú ár. Markmiðið með Gagnatorginu er að gera upplýsingar úr rekstri sveitarfélagsins aðgengilegri og að auka gagnsæi í fjármálum og stjórnsýslu. Upplýsingarnar birtast meðal annars með myndrænni framsetningu í súlu- og línuritum. Gagnatorgið er í stöðugri þróun og verður upplýsingum bætt þar inn jafnóðum og þær liggja fyrir. Allar ábendingar eru vel þegnar og má senda á netfangið nordurthing@nordurthing.is  Er það von okkar að íbúar og aðrir hafi gagn og gaman af þeirri viðbót sem gagnatorgið er við upplýsingagjöf sveitarfélagsins.


Hér má finna tengil á Gagnatorgið

Á næstu dögum verður virkjaður tengill á gagnatorgið á forsíðuvef Norðurþings.