Fara í efni

Sameining Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps verður að veruleika

Í gær gengu íbúar ofangreindra sveitarfélaga að kjörborðinu um tillögu sameiningarnefndar um sameiningu fjögurra sveitarfélaga í eitt.  Kjörsókn í gær var betri í þremur af fjórum sveitarfélögum sem nú hafa samþykkt sameiningu heldur en hún var í kosningunum 8. október sl. Í Raufarhafnarhreppi var kjörsókn heldur minni nú en í fyrstu umferð kosninganna, en munurinn er þó óverulegur eða 1,4%.  Í öllum sveitarfélögunum fjórum eru fleiri sem greiða atkvæði með sameiningu nú en í fyrstu umferð kosninganna.  Ef niðurstöðurnar eru skoðaðar út frá þeim sem afstöðu tóku í atkvæðagreiðslunum 8. október og 21. janúar kemur í ljós að stuðningur við sameiningu hefur vaxið.  

Í gær gengu íbúar ofangreindra sveitarfélaga að kjörborðinu um tillögu sameiningarnefndar um sameiningu fjögurra sveitarfélaga í eitt.  Kjörsókn í gær var betri í þremur af fjórum sveitarfélögum sem nú hafa samþykkt sameiningu heldur en hún var í kosningunum 8. október sl. Í Raufarhafnarhreppi var kjörsókn heldur minni nú en í fyrstu umferð kosninganna, en munurinn er þó óverulegur eða 1,4%. 
Í öllum sveitarfélögunum fjórum eru fleiri sem greiða atkvæði með sameiningu nú en í fyrstu umferð kosninganna. 
Ef niðurstöðurnar eru skoðaðar út frá þeim sem afstöðu tóku í atkvæðagreiðslunum 8. október og 21. janúar kemur í ljós að stuðningur við sameiningu hefur vaxið.

Niðurstöður 21. jan.

Niðurstöður 8. október

Niðurstöður 21. jan.

Niðurstöður 8. október

Nei

Húsavíkurbær

79,10%

74,84%

20,90%

25,16%

Kelduneshreppur

54,10%

49,12%

45,90%

50,88%

Öxarfjarðarhreppur

55,50%

51,92%

44,50%

48,08%

Raufarhafnarhreppur 

58,90%

56,12%

41,10%

43,88%

Framundan er vinna við mótun nýs sveitarfélags, en tilkoma þess mun gjörbreyta umhverfi sveitarstjórnarstigsins í Þingeyjarsýslum.

Kosið verður til sveitarstjórnar í hinu nýju sveitarfélagi við kosningar í vor og mun það formlega verða til 11. júní 2006.  

Til að sjá frétt um málið á síðu Félagsmálaráðuneytis smellið hér