Þjónusta við aldraða
Norðurþing á hlut í Dvalarheimili aldraðra sf í Þingeyjarsýslum. Stofnunin rekur dvalarheimilin Hvamm á Húsavík, Stórumörk á Kópaskeri og Vík á Raufarhöfn. Þar er veitt dægradvöl við aldraða íbúa í Þingeyjarsýslum.
Dægradvöl aldraðra
Dægradvöl er rekin á vegum stofnunarinnar á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn. Alls eru tíu dagvistarrými á Húsavík, átta á Kópaskeri og fimm á Raufarhöfn. Dvalarheimili aldraðra rekur félags- og þjónustumiðstöð á öllum þremur stöðunum.
Í Hvammi er starfandi dægradvöl, HORNIÐ sem er opið alla virka daga frá kl. 8-16. Þangað get eldri borgarar í bæjarfélaginu, sem enn eru í sjálfstæðri búsetu komið og eytt deginum við hvaðeina sem hugurinn stendur til. Tómstundafulltrúi heimilisins sér ásamt öðru starfsfólki meðal annars um upplestur, bingó, boccia, myndasýningar, hópferðir á sýningar, bílferðir, bæjarferðir, skemmtanir innanhúss og fleira.
Þeir einstaklingar, sem nýta sér dægradvölina, geta fengið allar máltíðir dagsins gegn vægu gjaldi ásamt böðun og leikfimi undir stjórn sjúkraþjálfara auk læknis- og hjúkrunarþjónustu.
Á Kópaskeri er rekin dægradvöl, STÓRAMÖRK. og er hún opin alla virka daga frá kl. 8-16. Þar geta gestir fengið hádegismat og kaffi og eytt deginum við spjall, handavinnu, spil eða hvaðeina sem hugurinn stendur til. Í Stórumörk hefur heilsugæslan einnig aðstöðu til að sinna sínum skjólstæðingum.
Á Raufarhöfn er rekin dægradvöl, VÍK. Vík er opin alla virka daga frá kl. 10-14. Þar geta gestir fengið hádegismat og eytt hluta dagsins við spjall, spil eða handavinnu. Í Vík hefur heilsugæslan einnig aðstöðu til að sinna sínum skjólstæðingum.
Búsetumál aldraðra
Dvalarheimili aldraðra rekur svokallaðar búseturéttaríbúðir á Húsavík. Um er að ræða 28 íbúðir í Litlahvammi, Miðhvammi og Brekkuhvammi. Þeir sem búa í slíkum búseturéttaríbúðum geta nýtt sér alla þá aðstöðu og þjónustu sem Hvammur hefur upp á að bjóða.
Í upphafi árs 2010 fluttu fyrstu íbúarnir inn í leiguíbúðir á vegum félagsins við Útgarð á Húsavík. Um er að ræða átta íbúða hús á besta stað í bænum.
Akstur
Þeir íbúar sveitarfélaganna, sem óska eftir því að koma í dagþjálfun geta fengið akstur til og frá Horninu og greiða ekki aukalega fyrir það. Æskilegt er að panta akstur með dags fyrirvara.
Vistunarmál aldraðra
Umsóknir um dvalarrými fyrir aldraða skulu berast félagsþjónustu í sveitarfélagi umsækjanda. Starfsmaður félagsþjónustunnar fer yfir umsóknina og kynnir sér aðstæður hins aldraða. Leiði athugun í ljós að umsækjandi geti fengið aukinn stuðning til áframhaldandi búsetu á heimili sínu er honum boðin aukin þjónusta eða skoðaðir möguleikar á öðru búsetuformi. Séu öll möguleg stuðningsúrræði hins vegar fullreynd eða viðkomandi telur sér ekki fært að búa lengur heima þrátt fyrir boð um aukna þjónustu er umsókn hans send umsjónarmanni matsteymis um dvalarrými í viðkomandi heilbrigðisumdæmi ásamt greinargerð um aðstæður hins aldraða.
Beiðnir um hjúkrunarrými skulu berast Heilbrigðisstofnun Norðurlands.