Fara í efni

Frá Umhverfisstofnun varðandi áætlun um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa frá skipum

Málsnúmer 201112004

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 19. fundur - 13.06.2012

Borist hafa athugasemdir Umhverfisstofnunar vegna "Áætlana Norðurþings um móttöku og meðhöndlun úrgangs og farmleifa.Stofnunin telur ánægjulegt hversu fljótt áætluninni var skilað til staðfestingar og telur að í þeim komi fram flest þeirra atriða sem fram eiga að koma í slíkum áætlunum en telur þó að gera þurfi á þeim smávægilegar breytingar sem upp eru taldar. Brugðist hefur verið við athugasemdunum og ný útgáfa verður send ráðuneytinu. Lagt fram til kynningar.