Fara í efni

Samkomulag milli Hafnarsjóðs og hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavíkum um farþegagjöld í höfnum Norðurþings

Málsnúmer 201206086

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 20. fundur - 10.07.2012

Fyrir fundinum lágu drög að samkomulagi milli Hafnasjóðs Norðurþings og hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavík um gjaldöku vegna farþegaflutninga í höfnum Norðurþings. Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir fyrirliggjandi samkomulag. Áki óskar bókað:"Ég samþykki samninginn en vil benda á að samþykkt var í septemberfundi nefndarinnar árið 2010 að farþegagjöld yrðu innheimt mánaðarlega með eindaga tuttugasta hvers mánaðar. Eftir þeirri samþykkt hefur ekki verið farið en ég vona að Norðurþing fari nú eftir samkomulaginu".