Fara í efni

Sigrún Ingvarsdóttir sækir um leyfi fyrir torgsölu á hafnarsvæðinu á Húsavík

Málsnúmer 201206091

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 20. fundur - 10.07.2012

Sigrún sækir um leyfi til að setja upp 9 m2 sölutjald á hafnarsvæðinu á Húsavík fyrir handverkssölu og ýmsa heimaframleiðslu á svæði sem skilgreint er fyrir slíka starfsemi samkvæmt nýju deiliskipulagi. Hugmyndin er ekki sú að tjaldið standi til lengri tíma heldur að setja megi það upp á góðviðrisdögum og við sérstök tilefni Framkvæmda- og hafnanefnd samþykkir erindið og felur hafnarstjóra framgang málsins.