Fara í efni

Erindi frá Framfarafélagi Öxarfjarðar varðandi skilti við gatnamót þjóðvegar 85 og þjóðvegar 870

Málsnúmer 201207003

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 20. fundur - 10.07.2012

Framfarafélag Öxarfjarðar óskar eftir að komið verði upp upplýsingaskilti á gatnamótum þjóðvegar 85 (Hófaskarðsleiðar) og þjóðvegar 870 (Sléttuvegar) þar sem vakinn verði athygli á þeirri þjónustu sem er til staðar á Kópaskeri.Fulltrúar fyrirtækja á Kópaskeri og Framfarafélagsins eru tilbúnir til samstarfs um málið. Framkvæmda- og hafnanefnd skorar á Vegagerðina að verða við tilmælum Framfarafélags Öxarfjarðar og felur f&þ fulltrúa að kynna Vegagerðinni málið.