Fara í efni

Ósk um aukafjárveitingu fyrir málaflokk 13 027 atvinnumál-stóriðjuverkefni

Málsnúmer 201209006

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 54. fundur - 05.09.2012

Fyrir bæjarráði liggur ósk bæjarstjóra um aukafjárveitingu í málaflokk 13 - Atvinnumál - vegna orkufreks iðnaðar á Bakka, um allt að 10 milljónir króna, til að mæta kostnaði við samningagerð við væntanlega orkukaupendur, sérfræðiaðstoð við greiningar, samningagerð við stjórnvöld og stoðstofnanir þeirra. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjani beiðni um aukafjárveitingu.