Fara í efni

Bréf frá Samkeppniseftirlitinu til sveitarfélaga varðandi útleigu og sölu húsnæðis á vegum hins opinbera

Málsnúmer 201211094

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 63. fundur - 06.12.2012

Fyrir bæjarráði liggur bréf frá Samkeppnieftirlitinu varðandi útleigu og sölu húsnæðis á vegum opinberra aðila. Samkeppniseftirlitið vekur athygli á áliti stofnunarinnar nr. 1/2012 en þar kemur fram að gæta skal að samkeppnissjónarmiðum við útleigu og sölu húsnæðis á vegum hins opinbera. Einnig er vakin athygli á fyrri álitum og skýrslum eftirlitsins sem snúa með einum eða öðrum hætti að stjórnsýslu sveitarfélaga. Bréfið lagt fram til kynningar.