Fara í efni

Ágúst Hafsteinsson sækir f.h. Benedikts Kristjánssonar um leyfi til að skipta íbúðarhúsi að Þverá í tvær íbúðir

Málsnúmer 201212009

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 99. fundur - 12.12.2012

Óskað er eftir samþykki fyrir innréttingu nýrrar íbúðar í austurenda gamla íbúðarhússins að Þverá í Öxarfirði. Skipulags- og byggingarnefnd fellst á að innréttuð verði ný íbúð í húsinu og er byggingarfulltrúa falið að veita byggingarleyfi þar að lútandi þegar fullnægjandi gögn hafa borist. Útbúa þarf óháða flóttaleið út úr eldri íbúð í stað þeirrar sem lokað verður skv. teikningu.