Fara í efni

Axel Yngvason f.h. Ferðaþjónustunnar Skúlagarði ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir gistieiningar við Lund

Málsnúmer 201212026

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 99. fundur - 12.12.2012

Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir gistieiningum frá Skúlagarði annarsvegar og Reyðarfirði hinsvegar vestan við sundlaug í Lundi. Meðfylgjandi erindi er rissmynd af fyrirhugaðri staðsetningu.Skipulags- og byggingarnefnd fellst ekki á stöðuleyfi fyrir umsóttum mannvirkjum. Umsækjandi hefur ekki lóðarréttindi í Lundi og ekki fylgja erindinu myndir af fyrirhuguðum mannvirkjum.