Fara í efni

Félag eldri borgara á Húsavík og nágrenni, umsókn um styrk

Málsnúmer 201401115

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 93. fundur - 30.01.2014

Fyrir bæjarráði liggur styrkbeiðni frá félagi eldri borgara á Húsavík og nágrenni. Félagið óskar eftir fjárstyrk að upphæð 300.000.- krónur þar sem félagsmönnum hafi fjölgað töluvert á undanförnum árum en skráðir félagar eru 227. Bæjarráð hefur afgreitt fjárhagsáætlun sína fyrir árið 2014 en þar er gert ráð fyrir 150.000.- króna framlagi til Félags eldri borgara á Húsavík.