Fara í efni

Baldur Hólmsteinsson sækir um breytta skráningu fasteignarinnar Grjótnes II

Málsnúmer 201401120

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 114. fundur - 12.02.2014

Baldur Hólmsteinsson f.h. eigenda að Grjótnesi II óskar eftir því að gamla íbúðarhúsið á jörðinni verði skráð sem frístundahús í stað geymslu. Á undanförnum árum hefur húsið verið lagfært til frístundanota. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna um breytinguna til Þjóðskrár. Jón Grímsson vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis.