Fara í efni

Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna veitingar tækifærisleyfis fyrir þorrablót á Kópaskeri

Málsnúmer 201401148

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 93. fundur - 30.01.2014

Fyrir bæjarráði liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Húsavík vegna umsóknar Sigurðar Tryggvasonar, Víðilundi, 675 Kópaskeri f.h. þorrablótsnefndar um tækifærisleyfi vegna skemmtanahalds og tímabundið áfengisleyfi í Íþróttahúsinu á Kópaskeri, laugardaginn 22. febrúar n.k. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.