Fara í efni

Samstarfssamningur vegna landsmóts 50 ára og eldri á Húsavík 20. til 22. júní 2014

Málsnúmer 201403038

Vakta málsnúmer

Tómstunda- og æskulýðsnefnd Norðurþings - 28. fundur - 18.03.2014

Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi kynnti samstarfssamning milli Landsmótsnefndar UMFÍ 50+ og Norðurþings vegna framkvæmdar 4.Landsmóts UMFÍ 50+ dagana 20.-22.júní 2014. Samstarf er vegna afnota af mannvirkjum, áhöldum og tækjum sveitarfélagsins meðan á mótinu stendur. Tómstunda- og æskulýðsnefnd fagnar því að Landsmót 50+ sé haldið á Húsavík.