Fara í efni

Stefán Guðmundsson f.h. Gentle Giants-Hvalaferða ehf. sækir um framkvæmdaleyfi á Hafnarstétt 5

Málsnúmer 201403064

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 115. fundur - 19.03.2014

Óskað er eftir leyfi til framkvæmda á lóðinni. Fyrir fundi er rissmynd af fyrirhuguðu húsi. Erindið er hliðstætt því sem nefndin fjallaði um á fundi sínum þann 12. júní 2013. Skipulags- og byggingarnefnd minnir á að skýrar línur hafa verið lagðar í deiliskipulagi um hvað byggja má á lóðinni. Ósk um byggingarleyfi verður afgreitt af byggingarfulltrúa þegar lagðar hafa verið fram fullnægjandi teikningar af húsi sem samrýmast ákvæðum deiliskipulagsins.