Fara í efni

Steinunn Sigvaldadóttir f.h. Norðursiglingar ehf. sækir um leyfi fyrir merkingum á nýju miðasöluhúsi

Málsnúmer 201405085

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 118. fundur - 01.07.2014

Óskað er eftir leyfi til að setja merkingar á nýja þjónustumiðstöð sem hýsir miðasölu. Aðalmerking eru fljótandi stafir á skyggni hússins ásamt þremur 4 m háum fánastöngum á sv-hlið hússins. Einnig er gert ráð fyrir gegnsæum merkingum á gleri hússins ásamt upplýsingaskjá í nyrsta glugga á framhlið. Meðfylgjandi umsókn eru teikningar af útfærslum. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir þær merkingar sem óskað er eftir.