Fara í efni

Gunnlaugur K. Hreinsson f.h. GPG seafood óskar eftir stækkun á athafnasvæði fyrirtækisins á hafnarsvæði til suðurs

Málsnúmer 201410097

Vakta málsnúmer

Framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 45. fundur - 19.11.2014

GPG Seafood óskar eftir stækkun á athafnasvæði félagsins. Þess farið á leit að útfall Búðarár verði fært til suðurs GPG Seafood verði úthlutað lóð suður fyrir núverandi lóð félagsins.

Framkvæmda- og hafnanefnd tekur vel í erindið og felur fþ fulltrúa að hefja viðræður við bréfritara um tæknilegar útfærslur á mögulegu athafnasvæði og tilfærslu á útfalli Búðarár. Tillagan verði lögð fyrir nefndina til staðfestingar.