Fara í efni

GPG Seafood ehf - breytingar á aflamarki

Málsnúmer 201505081

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 140. fundur - 21.05.2015

Fyrir bæjarráði liggur erindi frá GPG Seafood ehf þar sem farið er á leit við Norðurþing að sveitarfélagið falli frá forkaupsrétti að varanlegu aflamarki í krókaaflamarkskerfi sem mun fara af Lágey ÞH/Háey ÞH á næstu dögum í skiptum fyrir aflamark í aflamarkskerfi.
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti.

Bæjarráð Norðurþings - 144. fundur - 25.06.2015

Fyrir bæjarráði liggur erindi frá GPG Seafood ehf um að sveitarfélagið falli frá forkaupsrétti að varanlegu aflamarki í krókaaflamarkskerfi sem mun fara af Bjargey ÞH/Háey ÞH
Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið falli frá forkaupsrétti að Bjargey ÞH 278