Fara í efni

Fasteignafélag Húsavíkur ehf. og Gistiheimili Húsavíkur ehf. gera tilboð í fasteignina að Höfða 24

Málsnúmer 201510008

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Norðurþings - 154. fundur - 08.10.2015

Fyrir bæjarráði liggur tilboð í fasteignina Höfða 24c
Bæjarráð þakkar bréfritara erindið en telur sér ekki fært að ganga að því tilboði sem fyrir liggur. Norðurþing á 60% hlut í umræddu húsnæði á móti Leikfélagi Húsavíkur og telur bæjarráð ekki rétt að selja eignina án þess að fyrir liggi með formlegum hætti hver áhrif af slíku yrði á starfsemi meðeiganda (LH) og hver afstaða meðeiganda er til þessa.