Fara í efni

Kvartanir vegna ónæðis við gistiheimili að Iðavöllum 6 - Húsavík

Málsnúmer 201603059

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 2. fundur - 12.04.2016

Norðurþingi hafa borist kvartanir frá nágrönnum gisitheimilis að Iðavöllum 6 á Húsavík. Telja nágrannarnir ýmiskonar ónæði af þeirri starfsemi sem þar fer fram.
Skipulags- og umhverfisnefnd harmar þau óþægindi sem nágrannar verða fyrir vegna gistisölu að Iðavöllum 6. Nefndin hvetur aðila til að koma athugasemdum sínum á framfæri til leyfisveitanda sem er Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra.