Fara í efni

Ásgeir Kristjánsson fyrir hönd Varar Húsavík sækir um leyfi fyrir útlitsbreytingum að Naustagarði 2.

Málsnúmer 201603117

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 2. fundur - 12.04.2016

Ásgeir Kristjánsson fyrir hönd Varar Húsavík sækir um leyfi fyrir breyttum teikningum af Naustagarði 2. Breytingar felast í að rými veitingastaðar er aukið verulega frá því áður var. Bætt er við gluggum á vesturhlið. Fyrir liggja teikningar unnar af Sigurði Jakobssyni. Ennfremur liggja fyrir jákvæðar umsagnir frá Vinnueftirliti, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og eldvarnareftirliti.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir erindið.