Fara í efni

Almar Eggertsson f.h. fjárfesta lýsir yfir áhuga á lóðinni að Búðarfjöru 1 til uppbyggingar heilsuræktarmiðstöðvar m.m.

Málsnúmer 201604059

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 2. fundur - 12.04.2016

Almar Eggertsson, f.h. fjárfesta, lýsir yfir áhuga á lóðinni að Búðarfjöru 1 til að byggja upp heilsuræktarmiðstöð, aðra tengda starfsemi og skrifstofur. Meðfylgjandi erindi er greinargerð um byggingaráform.
Meirihluti skipulags- og umhverfisnefndar telur að sú starfsemi sem óskað er eftir að byggja upp á lóðinni samræmist ekki ákvæðum aðalskipulags og leggur því til við Sveitarstjórn að umsækjendum verði ekki boðin lóðin. Örlygur leggur til að umsækjendum verði boðin lóðin.