Fara í efni

Nanna Steina Höskuldsdóttir fyrir hönd veiðifélags Deildará sækir um afmörkun á lóð fyrir veiðihús

Málsnúmer 201605038

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 3. fundur - 10.05.2016

Óskað er eftir samþykki fyrir afmörkun lóðar umhverfis veiðihús félagsins. Meðfylgjandi umsókn er hnitsettur lóðaruppdráttur. Lóðarflatarmál er 1.811 m². Lóðin er til í fasteignaskrá Þjóðskrár en áður hefur ekki legið fyrir afmörkun hennar eða stærð.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að afmörkun lóðarinnar verði samþykkt en minnir á að formlegt samþykki vantar frá landeiganda.

Sveitarstjórn Norðurþings - 58. fundur - 17.05.2016

Á 3. fundi skipulags- og umhverfisnefndar var eftirfarandi bókað:

"Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að afmörkun lóðarinnar verði samþykkt en minnir á að formlegt samþykki vantar frá landeiganda."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar