Fara í efni

Einar Már Þórólfsson sækir um byggingarleyfi fyrir hús á lóðinni Stakkholt 10

Málsnúmer 201606036

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 7. fundur - 12.09.2016

Óskað er eftir leyfi til að byggja timburhús á grunni Stakkholts 10. Grunnur var miðaður við steinsteypt hús. Fyrir liggja teikningar unnar af Erni Sigurðssyni byggingartæknifræðingi. Einnig liggur fyrir umsögn slökkviliðsstjóra sem ekki gerir athugasemd við teikningar.
Skipulags- og umhverfisnefnd fellst á breyttar teikningar af húsinu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa skilað sér til byggingarfulltrúa.