Fara í efni

Gunnþóra Jónsdóttir sækir um leyfi til breytinga á geymsluhúsi að Rjúpnalundi 5 Öxarfirði

Málsnúmer 201608089

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 7. fundur - 12.09.2016

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir stækkun geymsluhúss um 5,1 m² að Rjúpnalundi 5 í Öxarfirði. Fyrir liggja teikningar unnar af Vigfúsi Sigurðssyni byggingartæknifræðingi hjá Mannviti. Fyrir liggur að nágrannar og landeigandi gera ekki athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni þegar fullnægjandi gögnum hefur verið skilað.