Fara í efni

Efla óskar eftir stöðuleyfi fyrir bráðabirgðaskrifstofu PCC á Bakka

Málsnúmer 201609120

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 7. fundur - 12.09.2016

Óskað er eftir stöðuleyfi til eins árs fyrir bráðabirgða skrifstofueiningum við vinnubúðir að Dvergabakka. Meðfylgjandi umsókn eru ljósmyndir af samskonar einingum og fyrirhuguð afstaða.
Skipulags- og umhverfisnefnd heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að veita stöðuleyfi fyrir einingunum til allt að eins árs þegar fullnægjandi gögn hafa skilað sér.