Fara í efni

Kærð ákvörðun um álagningu skipulagsgjalda á tímabundnar starfsmannabúðir að Bakka við Húsavík

Málsnúmer 201612178

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 260. fundur - 09.08.2018

Fyrir byggðarráði liggur úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kæru Norðurþings á álagningu skipulagsgjalds vegna starfsmannabúða á lóðunum Dvergabakka 1,3 og 4, Bakka við Húsavík, að fjárhæð kr. 4.604.694. Úrskurðarðorð nefndarinnar eru; "Hin kærða álagning skipulagsgjalds á hendur Norðurþingi vegna starfsmannabúða á lóðunum Dvergabakka 1,3 og 4, Bakka við Húsavík, að fjárhæð kr. 4.604.694, er felld úr gildi."
Lagt fram til kynningar.