Fara í efni

Umsókn um leyfi fyrir söluskúr á hafnarsvæði, sunnan við Helguskúr

Málsnúmer 201701029

Vakta málsnúmer

Hafnanefnd - 10. fundur - 18.01.2017

Þórunn Ágústa Kristjánsdóttir og Ragnhildur Helga Ingólfsdóttir sækja um stöðuleyfi fyrir söluskúr á miðhafnarsvæði Húsavíkurhafnar fyrir sumarið 2017 með sama fyrirkomulagi og sumarið 2016 eða frá byrjun maí og fram í október.
Hafnanefnd samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir umræddan söluskúr m.v. sömu forsendur og áður var gert og felur rekstrarstjóra hafna að ganga frá staðsetningu við rekstraraðila.