Fara í efni

Grunnskóli Raufarhafnar - Breyting á skóladagatali.

Málsnúmer 201701070

Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd - 10. fundur - 18.01.2017

Fræðslunefnd hefur til umfjöllunar ósk Grunnskóla Raufarhafnar um breytingu á skóladagatali. Óskað er eftir því að færa fyrirhugaðan starfsdag 24. janúar til 6. febrúar vegna þátttöku starfsfólks í námskeiði um uppeldisstefnuna Jákvæður agi. Ekki var gert ráð fyrir starfsdegi á leikskólanum á vorönn en þá yrði 6. febrúar starfsdagur þar.
Fræðslunefnd samþykkir breytinguna.