Fara í efni

Raufarhafnarhöfn- Möguleikar á komum skemmtiferðaskipa til hafnarinnar.

Málsnúmer 201701108

Vakta málsnúmer

Hafnanefnd - 10. fundur - 18.01.2017

Raufarhafnarhöfn- til kynningar, verkefni er varðar möguleika skemmtiferðaskipa til Raufarhafnar.
Silja Jóhannesdóttir kom inn á fundinn og kynnti hafnanefnd niðurstöður verkefnavinnu er varðar möguleika skemmtiferðaskipa að hafa viðkomu á Raufarhöfn.

Hafnanefnd þakkar Silju fyrir góða kynningu og samþykkir að haldið sé áfram með verkefnið og gögnum og upplýsingum sé safnað saman og þessir möguleikar kannaðir til hlítar.