Fara í efni

Fannar Helgi Þorvaldsson, f.h. Rifós hf., sækir um byggingarleyfi fyrir fjögur stykki eldisker á lóð fyrirtækisins að Lóni í Kelduhverfi.

Málsnúmer 201706082

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 18. fundur - 18.07.2017

Óskað er byggingarleyfis fyrir fjögur eldisker á lóð fyrirtækisins SA af Seiðastöð. Fyrir liggja afstöðumynd unnin af Þorvaldi Vestmann Magnússyni auk burðvirkisteikninga frá Mannviti.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur kerin til samræmis við ákvæði deiliskipulags og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi fyrir kerjunum.