Fara í efni

Endurskoðunarskýrsla vegna ársreiknings 2016

Málsnúmer 201706197

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 218. fundur - 30.06.2017

Fyrir byggðarráði liggur endurskoðunarskýrsla frá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte vegna vinnu þeirra við endurskoðunar Norðurþings ársins 2016. Í skýrslunni er farið yfir endurskoðunaraðferðir, ábyrgð endurskoðanda, sveitarstjórnar og sveitarstjóra ásamt ábendingum og athugasemdum um innra eftirlit, fjárhagsstöðu og rekstrarhæfi Norðurþings.
Byggðarráð felur fjármálastjóra að fylgja eftir ábendingum endurskoðenda.