Fara í efni

Umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við neðri hæð Túngötu 1.

Málsnúmer 201708007

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 22. fundur - 21.11.2017

Fatahreinsun Húsavíkur óskar eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Túngötu 1. Fyrir liggur rissmynd af fyrirhugaðari viðbyggingu sem er um 30 m² að flatarmáli á einni hæð. Meðfylgjandi umsókn er undirritað samþykki meðeiganda í húsinu auk helstu nágranna.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur grenndarkynningu fullnægjandi og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni þegar fullnægjandi gögn hafa borist.