Fara í efni

Framlenging leyfis fyrir vinnu- og skrifstofubúðir Munck á Höfða til loka september 2018.

Málsnúmer 201801169

Vakta málsnúmer

Framkvæmdanefnd - 25. fundur - 12.02.2018

Munck á Íslandi hefur farið fram á að aðstöðuleyfi vinnu- og skrifstofugáma á Höfða verði framlengt þar til í haust. Rætt hefur verið við hlutaðeigandi aðila og ekkert er því til fyrirstöðu af þeirra hálfu.
Fyrir framkvæmdanefnd liggur að taka ákvörðun um málið.
Framkvæmdanefnd samþykkir að vinnubúðir Munck á Íslandi fái að standa á Höfða til loka september 2018 og að gerður verði nýr samningur þess efnis milli aðila.