Fara í efni

Norðlenska matborðið ehf sækir um stöðuleyfi fyrir geymslutjöld í portinu við sláturhús

Málsnúmer 201804124

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 27. fundur - 17.04.2018

Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir þrjú 135 m² geymslutjöld á lóð Norðlenska. Stöðuleyfi gildi frá 1. ágúst til 31. desember 2018. Ætlunin er að geyma gærur í tjöldunum. Fyrir fundi liggur rissmynd af staðsetningu og ljósmynd af útliti. Slökkviliðsstjóri gerir ekki athugasemdir við að stöðuleyfi verði samþykkt.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir stöðuleyfi til ársloka 2018 fyrir tjöldunum.